*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og rúmgóða 6 herbergja íbúð við Kaplaskjólsveg 65, Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 131,5 fm.Eignin skiptist í 5 svefnherbergi, (4 svefnherbergi innan íbúðar, 1 herbergi staðsett í sameign á neðri hæð), baðherbergi, gang/hol, stofu / borðstofu, eldhús og sérgeymslu sem staðsett er í sameign á neðri hæð.
Einnig er sameiginlegt salerni á neðri hæð og góð hjólageymsla.
Komið er inn í
forstofu með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Gangur / hol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi, plastparket á gólfi. Útgengt er úr hjónaherbergi út á svalir.
Þrjú rúmgóð barnaherbergi með plastparketi á gólfum.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og upp á veggi, falleg innrétting, upphengt salerni, baðkar með sturtu, tengi fyrir þvottavél.
Eldhús er með fallegri innréttingu, rúmgóð eyja, helluborð, háfur, bakarofn, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi. Útgengt er úr eldhúsi út á svalir.
Stofa og
borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi.
Sérgeymsla með góðum hillum er staðsett í sameign á neðri hæð.
Rúmgott
svefnherbergi er staðsett á neðri hæð og aðgengi að
salerni á hæðinni sem er í sameign.
Sameiginlegt
þvottahús er í sameign á neðri hæð og rúmgóð
hjólageymsla.
Þetta er falleg, björt og rúmgóð fjölskyldueign á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, skóla, sundlaug og verslanir.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.