*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og fallega íbúð á 1.hæð við Hjarðarhaga 36, Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 64,8 fm.Komið er inn í
forstofu með harðparketi á gólfi. Í forstofu er lítill skápur / geymsla.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu, eldavél, nýlegur háfur, harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Svefnherbergi er rúmgott með nýlegum rúmgóðum fataskápum með lýsingu, harðparket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, nýlegar flísar á gólfi, nýlegt salerni, baðkar með sturtu. Gler í baðkari er nýlegt.
Herbergi með þakglugga er staðsett á efstu hæð hússins, nýlegt harðparket á gólfi. (Hefur nýst sem geymsla og/eða vinnuherbergi).
Sameiginlegt
þvottahús er á neðri hæð hússins.
Sérgeymsla er staðsett í sameign á neðri hæð.
Sameiginleg
hjólageymsla er staðsett í endabílskúr fyrir framan húsið.
Þetta er falleg eign á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, sundlaug, leikskóla, skóla og verslanir.
Snyrtilegur og barnvænn garður er við húsið.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.