*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og fallega 3 herbergja íbúð í lyftuhúsnæði við Kirkjuvelli 12a, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 80,2 fm.Komið er inn í flísalagða
forstofu með fataskápum.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Rúmgott
herbergi með fataskápum, harðparketi á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgótt með fataskápum, harðparket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, harðparket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Eldhús er með fallegri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, háfur og tengi fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, sturta með gleri, upphengt salerni, hanklæðaofn og tengi fyrir þvottavélar.
Sérgeymsla er í sameign á neðri hæð.
Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla er einnig staðsett í sameign á neðri hæð.
Þetta er björt og falleg eign í nýlegu fjölbýli á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.