*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og rúmgóða 4 herbergja íbúð með bílskúr við Breiðvang 30, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 132,2 fm, þar af er bílskúr 24,5 fm.Komið er inn í
forstofu með parketi á gólfi.
Gangur / hol með parketi á gólfi, góðir fataskápar á gangi.
Tvö barnaherbergi með parketi á gólfum.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, hvít innrétting, granít á borði, baðkar með sturtu, salerni.
Eldhús er rúmgott með fallegri hvítri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, uppþvottavél sem fylgir, granít á borðum, á milli skápa, á sólbekkjum og á gólfi.
Þvottahús / búr er inn af eldhúsi, falleg hvít innrétting, granít á borði og á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á rúmgóðar svalir.
Sérgeymsla er í sameign á neðri hæð.
Sameiginleg
vagna og hjólageymsla einnig í sameign á neðri hæð.
Önnur stór og rúmgóð geymsla er í sameign á neðri hæð sem íbúðin deilir með einni annarri íbúð í stigaganginum.
Bílskúr er snyrtilegur, heitt og kalt vatn, granítflísar á gólfi.
Þetta er björt og góð fjölskyldueign á góðum stað í Norðurbænum, stutt er í skóla, leikskóla, verslanir og aðra þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.