*SELD*
STOFAN kynnir bjarta og rúmgóða 2 herbergja íbúð við Orrahóla 7, Reykjavík.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 71,8 fm, þar af er geymsla 4,3 fm.
Eigninni fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu.Komið er inn í
forstofu / hol með fataskápum, parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt er úr stofu út á rúmgóðar yfirbyggðar svalir.
Eldhús er opið og bjart með hvítri innréttingu, flísar á milli skápa, eldavél og vifta, parket á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, salerni og baðkar með sturtu. Tengi fyrir þvottavél inn á baðherbergi.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskápum, dúkur á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á neðri hæð.
Sameiginleg
hjóla og vagnageymsla einnig í sameign á neðri hæð ásamt
þurrkherbergi fyrir þvott.
Sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu.
Sameiginin er mjög snyrtileg.
Gólfið í hjóla og vagnageymslu er nýmálað.
Þetta er rúmgóð og björt eign á góðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skólar, leikskólar og verslanir í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.