*EIGNIN ER SELD*
STOFAN kynnir bjarta og fallega 5 herbergja íbúð á 3.hæð við Hringbraut 57, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 114,1 fm.
Íbúðinni fylgir bílastæði á lóðinni við Garðstíg.Eignin skiptist í 4 svefnherbergi, stofu/borðstofu, gang/hol, eldhús, baðherbergi, sérgeymslu, þurrkherbergi og bílastæði.Komið er inn í flísalagða
forstofu, sameiginlegur inngangur með risíbúð.
Gengið er upp parketlagðan stiga.
Gangur / hol með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð, parket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir. Fallegt og mikið ústýni yfir höfnina og víðar.
Eldhús er með ljósri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð, vifta, tengi fyrir uppþvottavél, korkur á gólfi. Fallegt útsýni úr eldhúsi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi. Útgengt er úr herbergi út á svalir.
Svefnherbergi 1 er mjög rúmgott með fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3, parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, baðkar með sturtu, salerni og handklæðaofn, tengi fyrir þvottavélar.
Sérgeymsla er staðsett á neðri hæð hússins, innangengt frá íbúð/gangi.
Sameiginlegt
þurrkherbergi er staðsett í sameign á neðri hæð, einnig innangengt frá íbúð/gangi.
Bílastæði fylgir íbúð, keyrt að frá Garðsstíg.
Þetta er björt og rúmgóð eign á góðum stað í Suðurbæ Hafnarfjarðar með fallegu útsýni yfir Hafnarfjörð og víðar.
Stutt er í skóla, leikskóla, framhaldsskóla, sundlaug, verslanir og helstu stofnæðar.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.