SELD
STOFAN kynnir fallega 3 herbergja íbúð á jarðhæð í fjórbýli við Tjarnarbraut 3, Hafnarfirði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 74,6 fm.
Sérinngangur er í íbúðina.Komið er inn í flísalagða
forstofu.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi.
Eldhús er opið inn í stofu, nýleg innrétting og tæki, innbyggð uppþvottavél, helluborð og bakarofn í vinnuhæð, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með harðparketi á gólfi.
Barnaherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, salerni, handlaug og falleg innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar, sturta í þvottahúsi , tengi fyrir þvottavél.
Þetta er falleg eign sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti á síðustu árum.
Skv. seljanda: Eldhús hefur verið endurnýjað, baðherbergi, ofnar og ofnalagnir, gólfefni, fataskápar og rafmagnstafla.
Vel staðsett eign þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Verslanir, skólar og önnur þjónusta í göngufæri.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.