SELD
STOFAN kynnir bjarta og fallega 3 herbergja íbúð í lyftuhúsnæði við Skólabraut 5, Seltjarnarnesi.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 93,8 fm og er á 2.hæð.Íbúðin er í húsi fyrir 65 ára og eldri.Komið er inn í
forstofu með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Gangur með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parket á gólfi. Útgengt er úr stofu út á svalir.
Eldhús er með góðri innréttingu, flísar á milli skápa, eldavél, vifta, tengi fyrir uppþvottavél, parket á gólfi.
Inn af eldhúsi er
búr með góðum hillum, parket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, nýleg innrétting og handlaug, sturta og salerni.
Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum, parket á gólfi.
Herbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á sömu hæð og íbúðin (2.hæð) og er þar tengi fyrir þvottavél.
Snyrtileg sameign.
Í þjónustukjarna á jarðhæð við Skólabraut 3–5 er veitt margvísleg þjónusta og þar fer fram félagsstarf aldraðra.
Íbúar geta keypt heitan hádegismat í matsal á Skólabraut 5 alla daga vikunnar, einnig hægt að fá mat sendan heim.
Í þjónustukjarna er boðið upp á hárgreiðslu, fótsnyrtingu og aðstoð við böðun. Húsvörður er í húsinu.Þetta er falleg eign á rólegum stað á Seltjarnarnesi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og verslanir.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected], Atli Þór Albertsson í s: 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.