Selvogsgata 26, 220 Hafnarfjörður
67.900.000 Kr.
Fjölbýli
5 herb.
117 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1947
Brunabótamat
47.850.000
Fasteignamat
63.100.000

EIGNIN ER SELD MEÐ FYRIRVARA

STOFAN kynnir bjarta og rúmgóða 4-5 herbergja hæð og kjallara við Selvogsgötu 26, Hafnarfrði.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 117,2 fm.


Komið er inn í flísalagða forstofu, sameiginlegur inngangur er með risíbúð, innangengt úr forstofu í kjallara.
Gangur / hol með flísum á gólfi.
Eldhús er með góðri innréttingu, flísar á milli skápa, bakarofn, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél, flísar á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með p.parketi á gólfi.
Herbergi er á hæðinni sem var bætt við, áður nýtt sem sjónvarpshol (auðvelt að taka niður aftur).
Gengið er niður hringstiga á neðri hæð.
Þrjú rúmgóð herbergi með p.parketi á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, falleg innrétting, góður skápur á vegg, handklæðaofn, sturta með gleri og salerni. (Nýtt upphengt salerni getur fylgt með eigninni).
Innangengt er í sameiginlegt þvottahús úr holi neðri hæðar, þar sem einnig er hægt að ganga út.
Geymsluskúr á lóð sem er séreign íbúðar.
Sameiginlegur og gróinn garður er umhverfis húsið og skjólgöð verönd á suðurhlið.

Þetta er björt og falleg eign miðsvæðis í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] eða Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.