SELD
STOFAN kynnir bjarta og fallega 2 herbergja íbúð á jarðhæð við Skyggnisholt 10 í Vogum Vatnsleysuströnd.
Eignin er með sérinngangi og er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 64,4 fm.*Laus við kaupsamning*
*Þvottavél, þurrkari, uppþvottavél og ísskápur fylgir eigninni*
Gengið er inn um sérinngang á jarðhæð.
Komið er inn í flísalagða
forstofu með góðum fataskáp.
Gangur / hol með harðparketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt með harðparketi á gólfi. Útgengt er úr stofu út á verönd.
Eldhús er með fallegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, helluborð, vifta og bakarofn í vinnuhæð, ísskápur fylgir, harðparket á gólfi.
Svefnherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, upphengt salerni, sturta, handklæðaofn, þvottavél og þurrkari fylgir.
Sérgeymsla er innan íbúðar.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Næg bílastæði og hleðslustöðvar við húsið.
Þetta er björt og falleg eign í nýlegu húsi á góðum stað í Vogunum.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] eða Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.