Opið hús: 03. október 2023 kl. 17:00 til 17:30.
OPIÐ HÚS ÞRIÐJUDAGINN 3.OKT. FRÁ KL. 17:00-17:30
VINSAMLEGAST STAÐFESTIÐ KOMU Á OPNA HÚSIÐ Á [email protected]
Stofan fasteignasala kynnir bjart og fallegt einbýlishús við Digranesveg 64, Kópavogi.
Eignin stendur á fallegum og skjólgóðum stað með miklu útsýni og er skráð samtals 228,4 m².Bílskúrsréttur fylgir húsinu og eru til samþykktar teikningar af bílskúrnum.Fasteignamat 2024 verður 144.650.000 krAðalhæðKomið er inn í flísalagða
forstofu með fataskápum.
Gangur / hol með flísum á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með nýju harðparketi á gólfi.
Rúmgóður
sólskáli út frá stofunni með flísum á gólfi. Útgengt úr sólstofu á pall með heitum potti.
Eldhús með góðri innréttingu, flísar á milli skápa, bakarofn, helluborð og vifta, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, flísar á gólfi.
Neðri pallurÞrjú
svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Salerni með flísum á gólfi.
Baðherbergi með sturtu þar sem einnig er tengi fyrir þvottavél, flísar á gólfi og veggjum.
Efri pallurTvö rúmgóð
svefnherbergi með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með hvítri innréttingu, salerni, baðkar með sturtu, flísar á gólfi og veggjum.
Gengið er upp stiga upp í rúmgóða
stofu/viðbyggingu með miklu og fallegu útsýni í suður, harðparket á gólfi.
Gólfhiti er í viðbyggingu.
Geymsla í kjallaraUtangengt er í geymslu í kjallara hússins sem notuð er í dag sem þvottahús og geymsla.
Aðkeyrslan að húsinu er hellulögð og snjóbræðsla er í bílaplani.
Fallegur og vel hirtur garður er umhverfis húsið með sólpalli umhverfis heita pottinn.
Lítil útigeymsla úr timbri er á sólpalli við hlið hússins.
Skv. seljanda:-Byggt var við húsið árið 2015 þar sem stofa er í dag á efstu hæð.
-Harðparket sett á öll svefnherbergi, stofu og efri pall árið 2022.
-Leyfi var fengið árið 2013 fyrir sérstæðum tvískiptum bílskúr á 2 hæðum sem standa átti til helminga á lóðum 62 og 64 og vera
nýttur af báðum húsum. Hvor eignarhluti um sig 59.6m². Teikningar eru á kortavef Kópavogsbæjar og á fasteignasölunni.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] eða Atli Þór í s: 699-5080, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 64.900 m.vsk.