**Lóðin er tilbúin með sökkli og tengingum og hægt er að hífa hús beint á og byrja að njóta lífsins**
Byggingarleyfi útgefið
Vegur og bílastæði ásamt púða tilbúið
Búið er að steypa undirstöður fyrir 96m² hús
Búið að greiða fyrir heitt og kalt vatn ásamt rafmagni
Hitaveitulagnir komnar í jörðu frá húsi og að lóðamörkum
Rafmagn tengt og tilbúið í vinnutöflu
Rotþró í jörðu
STOFAN fasteignasala kynnir afar vel staðsetta sumarhúsalóð á einu vinsælasta sumarhúsasvæði landsins Hraunborgum (Hofsvík 5).
Hraunborgir eru með golfvelli allt í kring, þjónustumiðstöð, sundlaug og tjaldsvæði.Hofsvík 5 er staðsett í Hraunborgum í landi Sjómannadagsráðs um 45 mín akstur frá Reykjavík.
Lóðin er innarlega í hverfinu í aðeins 1 km. göngufjarlægð frá Kerinu.
Lóðin er fallega staðsett með fallegu útsýni.
Lóðarleigusamningur í gildi til 17.júní 2072.
Öryggishlið inn á svæði og öflugt sumarhúsafélag.
Í dag eru á sökklinum húseiningar sem þarf að fjarlægja. Þær eru einfaldar í flutningi og tilbúnar til hífinga.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.