Jónsgeisli 51, 113 Reykjavík (Grafarholt)
159.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
229 m2
159.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
90.920.000
Fasteignamat
147.800.000

STOFAN fasteignasala kynnir fallegt 229m² einbýlishús á tveimur hæðum með innbyggðum bílskúr í Grafarholti. 
Húsið sem nýtur mikils útsýnis er afskaplega bjart og smekklegt með afgirtu hellulögðu útisvæði til suðurs.
Sérinngangur er á neðri hæð á hlið hússins.
Stutt er í alla helstu þjónustu.


Efri hæð: Bílskúr, forstofa, gestasalerni, stofa, borðstofa og eldhús.
Neðri hæð: Þrjú rúmgóð herbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Innfelld lýsing í lofti í öllu húsinu.

Flísar á öllum rýmum og hiti í gólfi.
Léttir veggir og lagnir á neðri hæð bjóða upp á að hægt sé að
breyta herbergjaskipan og bæta við baðherbergi.


Efri hæð
Komið er inn í flísalagða forstofu
Bílskúr 27.9 m² er innangengur úr forstofu.
Gestasalerni er snyrtilegt með lítilli innréttingu, upphengt salerni.
Eldhús er bjart, rúmgott og opið með hvítri innréttingu og ljósum steini á borðum. Bakarofn í vinnuhæð, gaseldavél, háfur, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. 
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með útsýni yfir m.a. Úlfarsárdal, Esju og til sjávar. Útgengt er úr stofum á svalir.
Pallur: Útgengt er á sólpall frá borðstofu en frá honum nýtur einnig mikils útsýnis.

Neðri hæð:
3 rúmgóð herbergi sem skiptast í:
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi. 
Vinnustofa stór og björt með sérinngangi frá hlið hússins. Útgengt er úr herberginu út á pall og garð.
Svefnherbergi stórt og bjart með gluggum á þrjá vegu.. 
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi og veggjum, sturtu, upphengdu salerni, baðkari og handklæðaofni.
Þvottahús og geymsla þvottahús með vaski, innréttingu og geymslu innaf.

Léttir veggir og lagnir á neðri hæð ásamt sérinngangi gera það mögulegt að breyta herbergjaskipan og bæta við baðherbergi. 

Þetta er fallegt hús á vinsælum stað í Grafarholtinu. Stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar um eignina veita Atli Þór í síma 699-5080, [email protected] og Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.