SELD
STOFAN fasteignasala kynnir fallega 115,8 m² íbúð í Kórahverfi í Kópavogi
Íbúðin sem er á 9. hæð nýtur mikils útsýnis, er björt, opin og vel staðsettEignin skiptist í þrjú herbergi, forstofu, eldhús, stofu / borðstofu, baðherbergi og þvottahús ásamt sérgeymslu.
Yfirbyggðar rúmgóðar svalir.
Hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla á bílastæði.
Parket er á allri íbúðinni nema á baðherbergi og þvottahúsi sem eru með flísum.
Skóli og leikskóli í stuttri göngufjarlægð. Forstofa með góðum skápum.
Baðherbergi er snyrtilegt með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni, sturtu og baðkari.
Þvottahús með nýlegri innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð.
Eldhús er parketlagt, bjart og opið með hvítri og viðarklæddri innréttingu með gráum borðplötum. Bakarofn í vinnuhæð, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með miklu útsýni. Útgengt er úr stofu á yfirbyggðar svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.
Herbergi 2 með fataskáp.
Herbergi 3 innaf stofu/borðstofu er rúmgott með glugga á tvo vegu
Sérgeymsla er í sameign á neðstu hæð.
Sameiginleg
hjóla- og vagnageymsla einnig í sameign.
Þetta er góð eign á vinsælum stað í Kórahverfinu þar sem stutt er í skóla, leikskóla og alla helstu þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita
Atli Þór í síma 699-5080, [email protected] og
Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.