Breiðvangur 28, 220 Hafnarfjörður
76.900.000 Kr.
Fjölbýli
4 herb.
159 m2
76.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1974
Brunabótamat
62.940.000
Fasteignamat
77.400.000

Stofan fasteignasala kynnir bjarta og fallega 4 herbergja íbúð með bílskúr við Breiðvang 28, Hafnarfirði.
Eignin er á efstu hæð og er skráð samtals 159,8 fm, þar af er bílskúr 24 fm.
Íbúðin hefur verið endurnýjuð að miklu leyti og húsið tekið í gegn að utan.


Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, 3 svefnherbergi, og baðherbergi.
Bílskúr og 2 sérgeymslur í sameign á jarðhæð.


Komið er inn í rúmgóða forstofu/hol með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, bakarofn í vinnuhæð, helluborð og vifta, tengi fyrir uppþvottavél, harðparket á gólfi.
Rúmgott þvottahús/búr innaf eldhúsi.
Stofa/borðstofa er björt og rúmgóð með harðparketi á gólfi. Útgengt úr stofu á svalir með fallegu útsýni.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, harðparket á gólfi.
Tvö herbergi með góðum fataskápum og harðparketi á gólfi.
Baðherbergi með góðri innréttingu, flísar á milli skápa, salerni, sturta og baðkar, flísar á gólfi og í kringum baðkar.
Tvær rúmgóðar sérgeymslur eru í sameign á jarðhæð.
Sameiginlega hjóla- og vagnageymsla einnig í sameign.
Bílskúr með rafmagni og heitu og köldu vatni.
Snyrtileg sameign.

Skv.seljanda:
Íbúðin var endurnýjuð að miklu leyti 2011-2012.
Nýtt eldhús, fataskápar, gólfefni og sólbekkir að hluta.
Á síðustu 4 árum var farið í múrviðgerðir og málun utanhúss, skipt um glugga og gler þar sem þurfti.

Þetta er einstaklega falleg og björt eign í Norðurbæ Hafnarfjarðar sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti að innan ásamt góðu viðhaldi utanhúss.
Skóli, leikskóli og verslanir í göngufæri.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.