Klukkuvellir 3, 221 Hafnarfjörður
67.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
95 m2
67.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2008
Brunabótamat
45.500.000
Fasteignamat
61.250.000

STOFAN fasteignasala kynnir fallega og rúmgóða íbúð við Klukkuvelli 3, Hafnarfirði.
Sérinngangur er í íbúðina sem er á fyrstu hæð.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands 95,4 fm.


Eignin er þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð og samanstendur af forstofu, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi, þvottahúsi, eldhúsi, stofu/borðstofu og sérgeymslu.
Í sameign er rúmgóð hjóla- og vagnageymsla.
  • Sérinngangur
  • Rúmgóð verönd með svalalokun að hluta
  • Gólfhiti
  • Viðarparket á gólfum og flísar á votrýmum
  • Hleðslustöðvar við húsið
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp.
Gangur með parketi á gólfi.
Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengt úr stofu út á rúmgóða verönd sem er með svalalokun að hluta.
Eldhús er með fallegri innréttingu, bakarofn, helluborð og vifta, tengi fyrir uppþvottavél.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum, parket á gólfi.
Rúmgott barnaherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, falleg innrétting, sturta og upphengt salerni.
Þvottahús er rúmgott með flísum á gólfi.
Sérgeymsla er í sameign á jarðhæð.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla einnig í sameign á jarðhæð.

Þetta er falleg eign á góðum stað á völlunum þar sem skóli og leikskóli eru í göngufæri og stutt er í verslanir.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, [email protected] og Atli Þór í síma 699-5080, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati. 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.